spot_img
HomeFréttirJón "Aflakló" Guðmundsson

Jón “Aflakló” Guðmundsson


Jón Guðmundsson, dómari og þjálfari yngri flokka í Keflavík verður seint sakaður um að koma ekki titlum í hús hjá félagi sínu. Jón hefur á þessu ári verið svo sannarlega „aflakló“ fyrir þá blá klæddu í Reykjanesbænum. Kappinn hefur halað inn 6 titlum (íslands og bikar) fyrir félagið og þar á meðal einnig ein silfur verðlaun og á möguleika á 7 titlinum næstu helgi. 

Um núliðna helgi átti Jón bæði liðin í úrslitaleik 10. flokks kvenna og þar með eru silfur verðlaunin útskýrð.  10. Flokkur varð einnig bikarmeistari undir hans stjórn og svo tók stúlknaflokkur einnig bikarinn í sínum flokki.  Í 1. Deild kvenna var Jón með korn ungt lið sem gerði sér lítið fyrir og vann deildina.  Minnibolti 10 ára og einnig minnibolti 11 ára urðu Íslandsmeistarar á nýliðnum helgum.  Jón á enn möguleika á að stýra liði stúlknaflokks til Íslandsmeistaratitils en úrslit fara fram næstu helgi.  

10. flokkur kv. Íslandsmeistari  – Bikarmeistari
Stúlknaflokkur  Bikarmeistari
Minnibolti 10 ára kv.  Íslandsmeistari
Minnibolti 11 ára kv. Íslandsmeistari
1. Deild MFL kv.  Deildarmeistarar

Fréttir
- Auglýsing -