12:00
{mosimage}
(Anna María)
Keflvíkingurinn Anna María Sveinsdóttir segir safndiskinn með Rúnna Júll vera efstan á óskalistanum þessi jól. Anna borðar skötu og leyfir lesendum Karfan.is að skyggnast lítið eitt inn í jólahaldið hjá sér.
Borðar þú skötu á Þorláksmessu?
Já ég borða skötu en bara á Þorláksmessu mér finnst það tilheyra.
Hvað verður í matinn á aðfangadag?
Það er alltaf hamborgarahryggur og heimatilbúinn toblerone ís á eftir.
Ferð þú í messu á aðfangadag?
Nei það geri ég ekki en ég kveiki á útvarpinu kl.18 og hlusta á messu þá finnst mér jólin vera komin.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Safndiskinn með Rúnna Júll það er efst á óskalistanum þessi jólin.
Áttu skemmtilega og snarpa jólasögu fyrir okkur?
Nei því miður, Halldóra er farin í sveitina í jólafrí þannig að ég get ekki fengið hjálp við það en kannski seinna 🙂
Hvað ætlar þú að gera yfir hátíðarnar?
Bara hafa það gott njóta þess að vera heima með fjölskyldunni.
Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn?
Kertasníkir hann gefur mér alltaf í skóinn 😉



