spot_img
HomeFréttirJóhann Þór sér eftir ummælum sínum

Jóhann Þór sér eftir ummælum sínum

 

Jóhann Þór Ólafsson var heitt í hamsi eftir tapleik gegn Stjörnunni í gærkvöldi.  Ekki einungis hafði lið hans tapa illa í Garðabæ þá fannst honum vinnubrögð aganefndar ekki til fyrirmyndar og lét þau orð falla að "það hafi verið alger skita hjá Aganefnd" og þá vísaði hann í það að nefndin hafi skilað seint inn úrskurði þess að Eric Wise yrði i leikbanni. 

 

Jóhann hefur hinsvegar sent frá sér eftirfarandi tilkynningu. 

Ég biðst afsökunar á þeim ummælum sem ég lét falla eftir leik Stjörnunnar og Grindavíkur í gær varðandi störf aganefndar KKÍ.

Ég taldi að aganefnd kæmi saman á þriðjudögum og reiknaði með niðurstöðu í málinu samdægus. Nú hefur komið í ljós að aganefnd var að vinna eftir regluverki KKÍ. Það er ljóst að það hefur áhrif á undirbúning beggja liða hvort að lykilmaður verður með eða ekki og lét ég fara í taugarnar á mér hversu seint úrskurðurinn var birtur. Eins og áður sagði bið það heiðursfólk sem starfar í aganefnd KKÍ afsökunar á þessum ummælum.

 

Virðingarfyllst,

Jóhann Þór Ólafsson  

 

 

Viðtalið má sjá hér að neðan.
 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -