HomeFréttirJerry Sloan tekur ekki við Charlotte

Jerry Sloan tekur ekki við Charlotte

Þjálfaraleit lélegasta liðs NBA stendur enn yfir. Forráðamenn liðsins eru búnir að taka tíu aðila í viðtal og nú eru tveir þjálfarar eftir á lista. M.a. þeirra þjálfara sem liðið hefur útilokað eru Nate McMillan og Patrick Ewing.
Jerry Sloan sem þjálfaði Utah Jazz í 19 tímabil var sá síðasta til að detta út en hann gaf verkefnið frá sér.
Eftir standa þeir Brian Shaw, aðstoðarþjálfari Indiana Pacers, og Quin Snyder, aðstoðarþjálfari Cleveland Cavaliers.
 
Það styttist í að félagið tilkynnir um nýjan þjálfara en það er ljóst að sá sem tekur við liðinu á mikið verk framundan.
 
Mynd: Jerry Sloan verður ekki á hliðarlínunni í Norður-Karólínu á næsta tímabili.
 
Fréttir
- Auglýsing -