Haukar hafa gert breytingu á liði sínu í Iceland Express deild kvenna en félagið hefur sagt Hope Elam upp störfum og ráðið til sín Tierney Jenkins og verður hún með í Schenkerhöllinni í kvöld þegar topplið Keflavíkur kemur í heimsókn.
Jenkins lék með Alabama háskólanum en hér er á ferðinni framherji sem var að leika í Ísrael með Holon en varð að hverfa frá sínu liði þar sem klúbburinn skipti henni út fyrir WNBA leikmann.



