spot_img
HomeFréttirJeb Ivey aftur til Njarðvíkur

Jeb Ivey aftur til Njarðvíkur

 

Njarðvík hefur samið við bakvörðinn Jeb Ivey um að leika með liðinu á komandi tímabili í Dominos deild karla. Ivey er vel kunn­ur hér á landi því hann lék í fjög­ur ár með ís­lensk­um liðum. Fyrst með KFÍ 2003-04, þá Fjölni 2004-05, og síðan í tvö ár með Njarðvík frá 2005 til 2007.

 

Árið 2010 kom hann inn í lið Snæfells í úrslitum og vann með þeim Íslandsmeistaratitilinn. Síðan árið 2010 hefur Ivey spilað í Frakklandi og nú síðast í Finnlandi.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -