Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Boras Basket unnu sinn annan leik í röð í FIBA Europe Cup á miðvikudagskvöld þegar Boras hélt til Austurríkis og lék gegn ECE Bulls. Lokatölur 80-85 Boras í vil.
Jakob var stigahæstur í sigurliði Boras með 22 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar. Boras hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í keppninni.