HomeFréttirJakob Sigurðsson : Við vorum bara ragir

Jakob Sigurðsson : Við vorum bara ragir

Jakob Sigurðsson fann sig ekki eins og fleiri leikmenn Íslenska liðsins í erfiðu tapi gegn Eistlandi í Laugardalshöllinni í kvöld.  Jakob spilaði 30 mínútur í leiknum en skoraði aðeins 4 stig þrátt fyrir að hafa tekið 5 skot fyrir utan þriggja stiga línuna og önnur 5 fyrir innan.  Jakob var að vonum mjög svekktur eftir leik og sagði liðið hafa skort hugrekki til þess að klára leikinn.
 
Íslenska liðið fékk ekki blíðar móttökur í Laugardalshöllinni í kvöld og Eistar mættu með ákafa í vörninni sem virtist slá sóknarleik okkar manna útaf laginu.  Fékk Íslenska liðið ekki að spila sinn sóknarleik í kvöld?
"Nei við bara gerðum það ekki.  Við vorum bara ragir og eins og við þorðum ekki að taka af skarið og vinna".
Er hægt að setja velta því fyrir sér hvort álagið sé of mikið á fáum leikmönnum og menn orðnir þreyttir? 
"Ég veit það ekki, það er erfitt að segja.  Mér fannst við fá ágætis skot í leiknum.  Ég veit ekki hvað gerðist, þau bara fóru ekki niður og þá misstu menn smá sjálfstraust og þetta fór bara niður á við".  

Var þessi leikur ekki fyrirfram talinn einn af þeim leikjum sem Íslenska liði hefði getað unnið? 

"Þetta er ekkert auðvelt, þeir eru með gott lið og unnu Ísrael.  En að sjálfsögðu ætlum við okkur að vinna hérna, sérstaklega á heimavelli.  Ef við spilum góðan leik þá ættum við möguleika á því en við bara brotum smá í þessum leik.  Þeir gengu á lagið og eginlega völtuðu yfir okkur".  

Hvernig getur Íslenska liði svo gírað sig upp fyrir næsta leik sem er útileikur gegn Serbíu?

"Serbía er örugglega með sterkasta liðið og við erum að fara á þeirra heimavöll.  Við verðum bara að líta á þetta sem tækifæri til þess að gera betur.  Við erum að fara á útivöll til þess að spila við eitt af bestu liðum heims.  Þú færð ekki að gera það á hverju ári og ef þú nýtir ekki þetta tækifæri og gerir eins vel og þú getur og sérð hverju það skilar þér.  Þú verður bara að gera það".  

 

[email protected]

Mynd: Þorsteinn Eyþórsson – úr myndasafni-  Ísland- Ísrael.

Fréttir
- Auglýsing -