Jakob Örn Sigurðarson, landsliðsmaður og leikmaður Sundsvall Dragons, hefur verið tilnefndur sem íþróttamaður Sundsvall 2011. Valið fer fram þann 9. febrúar og er það fyrir íþróttafólk í Sundsvall og héruðunum í kring. Þrír aðrir eru tilnefndir sem íþróttamaður ársins og eru þeir auk Jakobs Anton Lander sem spilar hokký með Timra IK og Johan Mårtensson fyrir skotveiði.
Að auki eru Dragons eru tilnefndir sem lið ársins og Peter Öqvist, þjálfari þeirra og landsliðsþjálfari Íslands, sem leiðtogi ársins, en Drekarnir urðu meistarar á síðasta ári í sænsku úrvalsdeildinni.
Jakob var byrjunarliðsmaður á Norðurlandamóti landsliða sem fram fór í Sundsvall í sumar, var valinn í úrvalslið keppninnar og átti frábært tímabil í fyrra með Dragons, þar sem hann var að öðrum ólöstuðum maður oddaleiksins um titilinn þar sem hann fór hamförum, skoraði 31 stig og var með frábæra nýtingu.
www.kki.is