spot_img
HomeFréttirJakob með 21 stig í lokaleiknum

Jakob með 21 stig í lokaleiknum

21:17

{mosimage}

Jakob Örn Sigurðarson lék sinn síðasta leik á þessum tímabili í gærkvöldi þegar lið hans Univer tapaði á heimavelli gegn Zalakeramia 71-73 í ungversku deildinni. Jakob skoraði 21 stig, hitti úr 3 af 5 tveggja stiga skotum sínum, 4 af 6 þriggja stiga skotum, 3 af 4 vítum og gaf 3 stoðsendingar.

Jakob er nú á leið til Íslands þar sem taka við landsliðsæfingar  og undirbúningur fyrir B deildina í haust.

[email protected]

Mynd: www.universport.hu

Fréttir
- Auglýsing -