Úrslitakeppnin í Svíþjóð er nú í fullum gangi. Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings eru komnir í sumarfrí eftir að Södertalje Kings sópuðu þeim 3-0. Meistarar Sundsvall Dragons eru í svakalegri seríu gegn LF Basket en Sundsvall jafnaði einvígið á útivelli í gær. Þá eru Helgi Magnússon og liðsfélagar í 08 Stockholm einnig komnir í sumarfrí eftir 3-1 ósigur gegn Norrköping Dolphins.
LF Basket 73-78 Sundsvall
Sundsvall 2-2 LF Basket
Liðin mættust í sínum fjórða leik í gær þar sem Jakob Örn Sigurðarson fór mikinn með 31 stig í liði Sundsvall. Hlynur Bæringsson bætti við 6 stigum og 12 fráköstum en Pavel Ermolinski náði ekki að skora á þeim tæpu 30 mínútum sem hann spilaði í leiknum en Pavel var þó með 6 fráköst og 3 stoðsendingar. Oddaleikur Sundsvall og LF fer fram þann 4. apríl n.k. á heimavelli Sundsvall en það lið sem vinnur kemst í undanúrslit sænsku deildarinnar.
08 Stockholm HR 80-92 Norrköping Dolphins
Norrköping 3-1 08 Stockholm (Norrköping komnir í undanúrslit)
Helgi Magnússon gerði 13 stig og tók 4 fráköst í liði 08 Stockholm í gær í síðasta leik félagsins þetta tímabilið.




