Chris Miller-Williams mun leika með nýliðum KFÍ í úrvalsdeild á næstu leiktíð en hann hefur gert nýjan samning við félagið. Þessi krafthúsakappi fór mikinn með Ísfirðingum í 1. deildinni og verður fróðlegt að sjá hvernig honum muni reiða af í úrvalsdeild. www.kfi.is greinir frá.
Á heimasíðu KFÍ segir:
Hinn öflugi framherji Chris Miller-Williams sem kom með okkur upp í efstu deildina hefur undirritað nýan samning við félagið um að spila hérna næsta vetur. Chris var geysilega öflugur og sýndi í leikjum í Lengjubikarnum og Powerade bikarnum að hann er vel samkeppnshæfur á vellinum og fyrir utan góðan leik innan vallar er hann mikill og góður karakter utan vallar sem er mikill og góður plús. Það er ávallt fagnaðarefni þegar leikmenn vilja vera áfram hjá félögum á Íslandi. Það sýnir festu og ábyrgð af beggja hálfu.
www.kfi.is
Mynd/ [email protected] – Miller-Williams í leik með KFÍ gegn Keflavík í undanúrslitum Poweradebikarkeppninnar.




