spot_img
HomeFréttirJafn og spennandi leikur framan af í Dalhúsum

Jafn og spennandi leikur framan af í Dalhúsum

Fjölnir tók á móti ÍR-ingum í opnunarleik liðanna í 1. deild kvenna tímabilið 2017-2018. Fjölnir hafði betur í þessum fyrsta leik liðanna, 59-47.

Strax í fyrsta leikhluta leit hvorugt liðið út fyrir að vera hrætt við að skjóta boltanum, þrátt fyrir það að fæst skotin vildu rata niður. Fjölnisstúlkur leiddu eftir fyrsta leikhluta 12-10.

Í öðrum leikhluta bættu ÍR-inga aðeins í og náðu að nýta hraða sinna ungu til að skila nokkrum auðveldum sniðskotum. Þær náðu að vinna leikhlutann með 4 stigum og gengu því inn í hálfleikinn 2 stigum yfir, 22-24.

Heimamenn virtust reiðubúnar þegar þær komu úr búningsklefanum því að þær settu strax pressu á ÍR og gestirnir fóru að gera mistök sem að Fjölnir refsaði óspart fyrir. Á fyrstu 5 mínútum þriðja leikhluta skoraði Fjölnir 12 stig á móti aðeins 4 stigum ÍR. Góð vörn undir lokin lagaði stöðuna fyrir þær bláklæddu en á lokasekúndunni setti Fanndís María Sverrisdóttir þriggja stiga skot fyrir Fjölni til að koma muninum aftur upp í 4 stig, 40-36.

Seinasti leikhlutinn var jafn og spennandi frá upphafi en Fjölnir gat svarað öllum ásóknum ÍR. Berglind Karen Ingvarsdóttir átti góðan fjórðung en hún skoraði 7 af seinustu 9 stigum heimaliðsins sem kláraði leikinn eins og áður sagði 59-47.

Fyrir heimamenn voru þær Berglind Karen Ingvarsdóttir og Aníka Linda Hjálmarsdóttir atkvæðamestar. Berglind Karen skoraði 23 stig og Aníka Linda var grimm á báðum endum vallarins, en hún skoraði 14 stig, tók 13 fráköst, stal 3 boltum og varði eitt skot. 

Sá tölfræðiþáttur sem skildi liðin að var skotnýtingin og sóknarfráköstin. Fjölnir hitti úr 38% skota utan af velli á meðan að Breiðhyltingar urðu að sætta sig við 27% skotnýtingu. Ofan á þetta bættist að ÍR-ingum gekk illa að stíga út, en þær gulklæddu tóku 11 sóknarfráköst á móti fjórum sóknarfráköstum gestanna. Fjölnisstúlkur eru augljóslega mættar til leiks þó að erlendur leikmaður þeirra sé ekki ennþá komin til landsins. ÍR-ingar mega una sáttar við sitt þrátt fyrir að hafa ekki getað náð sigri í sínum fyrsta deildarleik, þær eiga nóg inni.

Þá eiga Grindavík, KR og Hamar eftir að hefja keppni í 1. deild kvenna, en svo einkennilega vill til að næsti leikur bæði Fjölnis og ÍR er gegn Grindvíkingum (þó með viku millibili)!

Tölfræði leiks

Myndasafn úr leik (Bára Dröfn)

 

 

Viðtöl eftir leik:

Fréttir
- Auglýsing -