08:59:44
Memphis Grizzlies ráku í gær þjálfara liðsins, Marc Ivaroni, úr starfi. Grizzlies hafa valdið vonbrigðum enn eitt tímabilið og heufr Ivaroni ekki náð að hrista saman úrslit úr liðinu þrátt fyrir að hafa fengið til sín sterka nýliða.
Nánar hér að neðan…
Ivaroni tók við liðinu fyrir síðasta tímabil, hans fyrsta sem aðalþjálfari eftir að hafa verið aðstoðarmaður hjá mönnum eins og Pat Riley og Mike DiAntoni. Hann stýrði liðinu til 22 sigra í fyrra, en leit ekki út fyrir að takast að bæta þann árangur þar sem vinningshlutfall Grizzlies er nú 11-30 og þeir hafa tapað sjö leikjum í röð og 15 af síðustu 17.
Samkvæmt fjölmiðlum vestan hafs mun aðstoðarmaður Ivaronis, Johnny Davis, stýra liðinu í næstu tveimur leikjum þar til Lionel Hollins getur fengið sig lausan úr aðstoðarþjálfarastöðu hjá Milwaukee Bucks og tekið við Grizzlies í þriðja skiptið.
Ivaroni, sem lék með Philadelphia, San Antonio og Utah á árunum 1982-89, varð þar með sjöundi þjáfarinn sem má taka pokann sinn í vetur, en það er spurning hvort einhver geti bjargað tímabili Grizzlies fyrir horn úr þessu.
ÞJ






