spot_img
HomeFréttirÍvar nýr þjálfari A-landsliðs kvenna

Ívar nýr þjálfari A-landsliðs kvenna

Körfuknattleikssamband Íslands hefur ráðið Ívar Ásgrímsson sem þjálfara A-landsliðs kvenna fyrir verkefni sumarsins. Ívar er núverandi þjálfari karlaliðs Hauka og hefur þjálfað liðið undanfarin ár með góðum árangri. www.kki.is greinir frá.
 
 
Ívar lék á árum áður með Haukum, Snæfell, ÍA, Breiðablik og ÍS og varð Íslandsmeistari með Haukum 1988. Ívar hefur áður þjálfað A-landsliðlið kvenna en hann stjórnaði liðinu frá 2004-2005.
 
Aðstoðarþjálfari Ívars verður Margrét Sturlaugsdóttir sem hefur þjálfað fjölmörg yngri landslið Íslands og séð um úrvalsbúðir stúlkna á undanförnum árum.
 
Verkefni sumarsins er Evrópukeppni FIBA Europe þar sem Ísland keppir í C-deild en áður að því móti kemur verða æfingaleikir hér heima gegn danska landsliðinu 9. og 10. júlí.
 
www.kki.is  
Fréttir
- Auglýsing -