„Það er frábært að vera hundfúll yfir því að hafa tapað í undanúrslitum á móti Grindavík,“ sagði Ívar Ásgrímsson, aðstoðarþjálfari Hauka, eftir að Grindvíkingar höfðu slegið Hauka út úr Powerade bikarnum í gærkvöldi.
„Þetta gekk ekki upp hjá okkur í kvöld. Þeir fóru að hitta og við gerðum of mikið af mistökum,“ bætti hann við og sagði að metnaður liðsins væri mikill en nú væri þetta verkefni búð og tími til að einbeita sér af deildinni.
„Ég vil segja að vendipunkturinn í leiknum hafi verið í upphafi fjórða leikhluta þegar að við erum sjö stigum yfir og missum boltann þrisvar í röð og í stað þess að bæta í muninn þar sem að við vorum með stemninguna með okkur þá ná þeir upp trúnni hjá sér og fara að hitt og hitta.“
Páll Axel Vilbergsson var drjúgur fyrir Grindvíkinga í lok fjórða leikhluta og sallaði niður hverja körfuna af fætur annarri. Ívar sagði að Haukaliðið hefði átt að vera búið að búa sér til aðeins meira forskot til að eiga innistæðu fyrir góðum leik Grindvíkinga á endakaflanum.
„Við vorum með leikinn í okkar höndum og við náðum ekki að fylgja eftir frábærum endasprett í þriðjaleikhluta og gefum eftir í þeim fjórða. Við slökum á í vörninni og menn líklegast orðnir þreyttir og við í raun fórum bara að gera eitthvað annað en við erum vanir.
Mynd / Grindvíkingar fögnuðu sigri á Haukum í gær – [email protected]





