Íþróttahús Seljaskóla heimavöllur ÍR-inga til margra ára í körfuknattleik sem jafnan hefur verið nefndur Hellirinn kemur til með að vera kallaður Hertz Hellirinn næstu þrjú árin hið minnsta. Er þetta hluti af samstarfssamningi Körfuknattleiksdeildar ÍR og Hertz Bílaleigu sem undirritaður var fyrr í kvöld á heimavelli ÍR-inga. Þar með verður Hertz einn af aðalstyrktaraðilum körfuknattleiksíþróttarinnar í Breiðholtinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KKD ÍR.
Ásamt nýju nafni þá verður einnig vígð glæný áhorfendastúka á fyrsta heimaleik liðsins í Domino´s deildinni
í vetur sem verður gegn Þór Þorlákshöfn föstudaginn 12.október.
Á meðfylgjandi mynd eru Einar Ómarsson varaformaður KKD ÍR, Hendrik Berndsen stjórnarformaður Hertz bílaleigu og Viðar Friðriksson formaður KKD ÍR ásamt leikmönnum meistaraflokks ÍR við undirskrift samningsins.




