spot_img
HomeFréttirÍsrael skellti íslenska liðinu með 27 stigum (umfjöllun)

Ísrael skellti íslenska liðinu með 27 stigum (umfjöllun)

Íslenska liðið þurfti að lúta fyrir feiknarsterkum leik Ísrael í Laugardalshöllinni í kvöld en liðin áttust við í undankeppni evrópukeppni landsliða. Ísrael hafði yfirburði á vellinum allan leikinn og sýndu það strax á fyrstu mínútum leiksins að þeir voru komnir til þess að sækja sigur. Íslenska liðið sýndi á köflum fínan leik en réðu hreinlega ekki við ótrúlegar skyttur gestanna sem skoruðu 110 stig gegn 83 stigum Íslands. Haukur Pálsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 19 stig og 4 fráköst en næstu menn voru Jón Arnór Stefánsson með 17 stig og Hlynur Bæringsson með 15 stig og 8 fráköst. Hjá Ísrael voru það leikmaður Cleaveland Cavaliers, Omri Casspi, og Raviv Limonad með 17 stig hvor. 
Hlynur Bæringsson skoraði fyrstu stig leiksins eftir laglega sendingu frá Jakobi Sigurðssyni strax í fyrstu sókn leiksins. Bæði lið misnotuðu næstu tvær sóknir sínar og Ísrael jafnaði svo leikinn eftir tæpar tvær mínútur, 2-2. Ísrael bætti svo við næstu 7 stigum leiksins og höfðu yfir 2-9 eftir þrjár mínútur þegar Peter Öqvist tók leikhlé.  Jón Arnór svaraði þó um hæl fyrir Íslenska liðið með þriggja stiga körfu en það duggði skammt, Omri Casspi svaraði strax og Ísrael hélt áfram að auka við forskotið.  Þegar fyrsti leikhluti var hálfnaðu höfðu þeir náð 13 stiga forskot, 5-18.  Ísreal átti alltof auðvelda leið að körfunni og nýttu sér það til hins ýtrasta, þeir klikkuðu varla úr skoti á fyrstu mínútunum á meðan boltinn fór ekki jafn auðveldlega ofaní á hinum enda vallarins.  Forskot gestanna var komið í 15 stig þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta, 10-25.  Jón Arnór setti næstu 5 stig íslendinga og minnkaði muninn niður í 12 stig, 15-27.  Íslenska liðið vann örlítið á forskot gestanna áður en flautað var til loka leikhlutans en Haukur Pálsson setti þá glæsilegt þriggja stiga skot rétt áður en leikhlutanum lauk, 19-29.  

Ísrael mættu vel stemmdir í annan leikhluta rétt eins og í þann fyrsta og settu fyrstu 4 stig leikhlutans þangað til Haukur Pálsson minnkaði aftur muninn fyrir Ísland, 22-33.  Íslenska liðið svaraði leik Ísraela vel í öðrum leikhluta og börðust vel fyrir hverjum bolta.  Munurinn á liðunum hélst því í kringum 10 stig.  Nýtingin hjá Íslenska liðinu var þó ekkert til að hrópa húrra fyrir því þegar Ísreal tók leikhlé í stöðunni 27-39, hafði Íslenska liðið aðeins nýtt 5 af 20 skottilraunum sínum fyrir innan þriggja stiga línuna.  Þegar leið á annan leikhluta fóru gestirnir aftur að sigla framúr og þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik höfðu þeir náð forskotinu upp í 19 stig, 29-48.  Ísrael var að hitta lygilega vel og höfðu ekki klikkað fyrir utan þriggja stiga línuna í þeim sjö skotum sem þeir höfðu tekið fyrir utan.  Hlynur Bæringsson minnkaði muninn niður í 15 stig þegar innan við mínúta var eftir af fyrri hálfleik.  Ísland átti síðustu sókn seinni hálfleiks en þeir fengu þá innkast á miðlínu þegar fjórar sekúndur voru eftir, Hlynur fékk boltan og var sendur á vítalínuna og nýtti annað skotið.  Það munaði því 14 stigum á liðunum þegar flautað var til hálfleiks, 36-50.  

Jón Arnór Stefánsson var yfirburðamaður hjá Íslenska liðinu í fyrri hálfleik, hann skoraði 14 stig og var að spila góðan varnarleik á helsta sóknarmann gestanna, Omri Casspi sem skoraði ekki stig í öðrum leikhluta eftir 9 stig í þeim fyrsta.  Hlynur Bæringsson átti einnig fínan fyrri hálfleik með 9 stig og 7 fráköst.  

Jakob Sigurðsson skoraði fyrstu stig Íslands í seinni hálfleik sem Ísreal svaraði með 5 stigum.  Haukur Pálsson kveikti þá allhressilega í pöllunum með glæsilegri troðslu, 40-55.  Íslenska liðið lét gestina finna fyrir sér í upphafi seinni hálfleiks og uppskáru nokkur  góð tækifæri.  Það vantaði hins vegar nokkuð uppá að nýta þau en liðið var að klikka úr nokkuð auðveldum skotum og gefa boltan frá sér. Þegar þriðji leikhluti var hálfnaður höfðu gestirnir náð forskotinu upp í 23 stig, 43-66.  Omri Casspi hafði þá nýtt sér mistök Íslands í sókninni, keyrt upp völlinn og troðið boltanum með stæl.  Gestirnir keyrðu yfir Íslenska liðið á næstu mínútum og juku forskotið örugglega. Þegar þrjár mínútur voru eftir af leikhlutanum var forskot gestanna 25 stig, 48-73.  Íslenska liðið virtist vera að mæta algjörum ofjörlum í þessum leikhluta og þegar honum var lokið var forskot gestanna komið í 29 stig, 51-80.  

Það var hins vegar annar bragur á leiknum í fjórða leikhluta en Íslenska liðið náði strax að minnka muninn niður í 25 stig áður en Ísland tók leikhlé, 59-84.  Þegar munurinn var kominn niður í 23 stig og Haukur Pálsson á leiðinni á vítalínuna tóku gestirnir leikhlé, 7 mínútur eftir á klukkunni, 63-86.  Mikið nær en það komust þeir þó ekki því Ísreal svaraði alltaf um hæl.

Þegar fjórði leikhluti var hálfnaður var staðan 65-89 og lítið sem benti til þess að Ísland gæti stöðvað sóknaraðgerðir Ísrael. Gestirnir skoruðu 11 stig gegn 2 stigum Íslands á skömmum tíma um miðbik fjórða leikhluta og Ísland tók því leikhlé þegar munurinn á liðunum var aftur kominn í 30 stig, 67-97. Logi fékk sína fimmtu villu þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum og var þess vegna sendur á bekkinn. Bæði Brynjar Þór og Axel Kárason náðu að setja mark sitt á leikinn með sitt hvorum þristnum á lokamínútunni og þegar lokaflautan gall var munurinn á liðunum kominn í 27 stig, 83-110.  

Næsti leikur Íslands er virkilega erfiður útileikur gegn Svartfjallalandi á föstudaginn og þar á eftir er það heimaleikur á mánudaginn gegn Eistlandi.  Við hvetjum alla til þess að fjölmenna á þann leik og styðja íslenska liðið.  

Umfjöllun/ [email protected]
Mynd/ [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -