20:12
{mosimage}
(Helena var funheit í kvöld og skorað 34 stig)
Íslenska kvennalandsliðið lék við Svartfjallaland í dag á útivelli og tapaði með tuttugu stiga mun. Lokatölur leiksins voru 92-72 þeim svartfellsku í vil.
Stigahæst hjá Íslandi var Helena Sverrisdóttir atkvæðamest og skoraði hún 34 stig og var eini leikmaður íslenska liðsins sem skoraði 10 stig eða meira. Næst henni í stigaskorun var Pálína Gunnlaugsdóttir en hún skoraði 8 stig.
Hjá Svartfjallalandi skoraði Milka Bjelica 26 stig og Hajdana Radunovic var með 23 stig.
Mynd: [email protected]