U20 ára landslið karla í körfuknattleik er komið til Bratislava í Slóvakíu þar sem liðið mun taka þátt í B-deild Evrópumótsins í GOPASS höllinni. Íslensku strákarnir drógust í C-riðil, sem er stærsti riðill mótsins með sex þátttökuliðum, en alls mæta tuttugu og eitt lið til leiks til að berjast um sæti.
Riðlakeppnin fer fram dagana tíunda til fimmtánda júlí þar sem Ísland mætir liðum Armeníu, Kýpur, Kósovó, Portúgals og Bosníu. Eftir það tekur við útsláttarkeppni og umspil sem hefst föstudaginn sautjánda júlí og lýkur mótinu með lokaleikjum sunnudaginn nítjánda júlí.
Íslenska hópinn skipa tólf leikmenn en það eru þeir Atli Hrafn Hjartarson, Ásmundur Múli Ármannsson, Birgir Leifur Irving, Birgir Leó Halldórsson, Frosti Valgarðsson, Guðlaugur Heiðar Davíðsson, Kristófer Breki Björgvinsson, Lars Erik Bragason, Lúkas Aron Stefánsson, Magni Thor Grissom, Magnús Dagur Svansson og Viktor Jónas Lúðvíksson. Aðalþjálfari liðsins á mótinu er Kjartan Atli Kjartansson og honum til aðstoðar í Slóvakíu eru þeir Thomas Cory og Gunnar Ingi Sverrisson.




