Eftir þann magnaða og sögulega sigur sem vannst á föstudagskvöldið, hélt íslenska landsliðið rakleiðis utan í gærmorgun.
Förinni var heitið til Litháen þar sem liðið undirbýr sig nú af kappi fyrir næsta slag gegn heimamönnum. Leikurinn fer fram í Klaipeda á morgun mánudag klukkan 16:30, en ljóst er að íslenski hópurinn verður örlítið breyttur þegar flautað verður til leiks.
Tveir lykilmenn hafa dregið sig út úr hópnum af ólíkum ástæðum. Haukur Helgi Pálsson ferðaðist með liðinu en neyðist til að sitja á bekknum vegna meiðsla. Þá varð Kári Jónsson eftir heima á Íslandi, en hann á von á sínu fyrsta barni á næstu dögum. Í þeirra stað hafa þeir Sigurður Pétursson og Ragnar Nathanaelsson verið kallaðir inn í hópinn til að styrkja liðið í þessu mikilvæga verkefni.





