spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2023Íslenska landsliðið mætt til Huelva

Íslenska landsliðið mætt til Huelva

Íslenska landsliðið er mætt til Huelva á Spáni þar sem það mun á fimmtudag mæta heimakonum í fyrri leik nóvemberglugga síns í undankeppni EuroBasket 2023. Ljóst er að um ákveðna brekku er að ræða fyrir íslenska liðið, þar sem að Spánn er efst liða í Evrópulista FIBA.

Seinni leikur liðsins er svo heimaleikur komandi sunnudag 27. nóvember kl. 16:30. Miðasala er í fullum gangi á leikinn inni á Stubb, en fyrir þá sem komast ekki verður hann einnig í beinni útsendingu á RÚV.

12 leikmanna hópur Íslands fyrir nóvembergluggann

Hérna er heimasíða mótsins

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -