HomeÚti í heimiEvrópaÍslendingur í eldlínunni með dönsku liði á Scania

Íslendingur í eldlínunni með dönsku liði á Scania

Íslensk körfuknattleikskona lét mikið að sér kveða á Scania Cup í dag þegar úrslit réðust í mörgum flokkum.

Cecilía Ólöf Sveinsdóttir og lið hennar, Åbyhøj frá Árósum, fögnuðu sigri í 10. flokki (U16) eftir sigur á sterku liði Norrköping í úrslitaleik. Cecilía, sem er fædd árið 2010 og uppalin í Stjörnunni, átti frábæran leik og sökkti þremur mikilvægum þriggja stiga körfum í úrslitaviðureigninni.

Þá var Kamilla Bergsveinsdóttir úr Keflavík valin í úrvalslið mótsins eftir flotta frammistöðu með sínu liði, sem laut einmitt í lægra haldi fyrir Norrköping í undanúrslitum.

Það voru fleiri ,,Íslendingar” sem fögnuðu titlum, því Craig Pedersen, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins, stýrði liði sínu EVN til sigurs í flokki U17 kvenna.

Ert þú með fréttir af Scania Cup? Sendu þær með mynd á [email protected].

Fréttir
- Auglýsing -