HomeFréttirÍslandsmótið í Stinger: Verður litið á þetta eins og titlana hjá Houston

Íslandsmótið í Stinger: Verður litið á þetta eins og titlana hjá Houston

Trausti Stefánsson mun ekki snúa aftur til að verja titilinn sinn sem Íslandsmeistari í Stinger en þann forláta titil vann kappinn rétt áður en síðasta leiktíð hófst. Í fyrra fór fyrsta Íslandsmótið í Stinger fram í Hertz Hellinum í Breiðholti þar sem Trausti skaut sjálfan Jimmy Bartolotta úr leik en Bartolotta hefur getið sér gott nafn sem einstaklega prósentugóð þriggja stiga skytta. Trausti sem nú býr í Svíþjóð við nám og frjálsar íþróttir verður því að láta titilinn af hendi baráttulaust en kveður þó með góðri kyndingu.
,,Að sjálfsögðu er ég til í að verja titilinn en það er hinsvegar einn hængur á þessu öllu saman. Ég er fluttur til Stokkhólms! Ef fjársterkir aðilar vilja borga fyrir mig far heim til að verja titilinn slæ ég ekki hendinni á móti því," sagði Trausti þegar Karfan.is náði tali af honum en Karfan.is og KKD ÍR standa saman að Íslandsmótinu í Stinger þann 30. september næstkomandi.
 
,,Þetta verður leiðinlegt fyrir sigurvegarann í ár því í framtíðinni verður litið á þetta eins og meistaratitla Houston Rockets árin 1994 og 1995, þeir unnu því Jordan var í fríi!"
  
Fréttir
- Auglýsing -