Sunnudaginn 30. september næstkomandi standa Körfuknattleiksdeild ÍR og Karfan.is að Íslandsmótinu í Stinger. Mótið fer fram í Hertz Hellinum í Breiðholti (áður íþróttahús Seljaskóla) en þetta er annað árið í röð sem mótið er haldið. Hinn örvhenti ofurmaður, Trausti Stefánsson, varð Íslandsmeistari í fyrra þar sem hann skaut m.a. Jimmy Bartolotta ref fyrir rass.
Í fyrra tóku um 30 manns þátt í mótinu og Trausti fór heim með forláta farandbikar sem hann verður að afhenda áður en keppni hefst.
Takið daginn frá, nánari upplýsingar berast síðar en keppnin hefst kl. 15:00 í Hertz Hellinum.
Mynd/ Trausti var brattur þegar hann varð Íslandsmeistari í Stinger í fyrra. Einhver þarna úti sem ætlar að velta honum úr hásætinu?






