Stjarnan byrjar undanúrslitaeinvígið gegn Tindastóli af miklum krafti og leiðir nú 1-0 eftir gríðarlega spennandi 96-95 sigur í Síkinu. Garðbæingar mættu galvaskir á þennan kunnuglega völl, en það var einmitt þar sem þeir fögnuðu sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli vorið 2025. Tindastóll þarf nú að sækja sigur á útivelli til að missa meistarana ekki of langt fram úr sér, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu.
Spennan í úrslitakeppninni heldur áfram annað kvöld þegar hitt undanúrslitaeinvígið fer af stað í Grindavík. Þar taka deildarmeistarar Grindavíkur á móti Valsmönnum í fyrstu viðureign liðanna.
Frekari umfjöllun og myndir eru væntanlegar






