Haukar tryggðu sér sæti í úrslitum Bónus deildar kvenna með öruggum 98-72 sigri gegn Keflavík í Blue-höllinni. Ríkjandi Íslandsmeistarar unnu þar með einvígið 3-1 og munu verja titil sinn gegn annað hvort Njarðvík eða Grindavík.
Krystal-Jade Freeman fór fyrir liði Hauka með 24 stig, en hjá Keflavík var Sara Rún Hinriksdóttir atkvæðamest með 26 stig. Það kemur í ljós eftir oddaleik Njarðvíkur og Grindavíkur, sem eru jöfn 2-2 í sínu einvígi, hvort Suðurnesjaliðið mætir Haukum í baráttunni um meistaratitilinn.




