spot_img
HomeFréttirÍslandi mátti þola stórt tap í Serbíu

Íslandi mátti þola stórt tap í Serbíu

Ísland mátti þola stórt tap gegn feiknarsterku liði Serba í kvöld.  Serbar sýndu það strax frá fyrstu mínútu að þeir ætluðu ekki að leyfa íslenska liðinu að trufla þá í að ná markmiðum sínum um að spila á Evrópumótinu.  Serbar náðu strax 23 stiga forskoti eftir fyrsta leikhluta og það forskot var komið upp í 37 stig í hálfleik, 66-29.  Íslandi átti þó sinn besta kafla í þriðja leikhluta sem þeir unnu með tveimur stigum,18-20.  Það dugði þó skammt því Serbar gjörsamlega völtuðu yfir Íslenska liðið í fjórða leikhluta, 30-9, og höfðu því 56 stiga sigur, 114-58.  
 

Íslenska liðið átti í raun aldrei möguleika gegn heimsklassa liði Serba sem sýndi mátt sinn með því að nýta alla þá leikmenn sem þeir höfðu úr að moða.  Allir leikmenn liðsins skoruðu í leiknum og 7 þeirra skoruðu 10 stig eða meira.  Þar fór fyrrum NBA leikmaðurinn og núverandi miðherji CSKA Moscow Nenad Krstic fyrir sínum mönnum með 15 stig og 6 fráköst.  

 

Í Íslenska liðinu skilaði Hlynur Bæringsson alveg stórmerkilegum tölum gegn ótrúlega sterku liði Serba.  Hlynur skoraði 12 stig, hirti 9 fráköst og gaf 4 stoðsendingar en hann var frákastahæsti maður vallarins(þess má þó geta að enginn í serbneska liðinu spilaði jafn margar mínútur og Hlynur eða 26 talsins).  Jakob Sigurðsson fann sig ágætlega fyrir utan þriggja stiga línuna og setti þar niður 4 af 7 skottilraunum en hann skoraði 14 stig í leiknum og var stigahæstur Íslenska liðsins.  

 

Næsta verkefni Íslands er í Laugardalshöllinni á sunnudaginn næstkomandi þegar Slóvakía kemur í heimsókn en útileikur Íslands gegn Slóvakíu er eini sigurleikur Íslands í undankeppninni hingað til.  Spurningin er, verður Íslenska liðið búið að jafna sig eftir þessa erfiður ferð til Serbíu?

 

[email protected]

mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -