Ísland tekur á móti Portúgal kl. 19:30 í kvöld í Ólafssal í undankeppni EuroBasket 2027. Frítt er á leikinn í boði Lengjunnar á meðan húsrúm leyfir og má því búast við nokkrum fjölda stuðningmanna liðsins á pallana í Hafnarfirði.
Leikurinn er sá annar í þessum öðrum glugga keppninnar, en fyrir síðustu helgi mátti liðið þola tap gegn Serbæiu úti í Novi Sad.
Íslenska liðinu hefur ekki enn tekist að ná í sigur í keppninni til þessa. Í fyrsta glugga keppninnar í nóvember tapaði liðið heima í Ólafssal fyrir Serbíu og þá máttu þær þola 30 stiga tap gegn Portúgal ytra.
Leikur kvöldsins er í beinni útsendingu á RÚV.





