spot_img
HomeFréttirÍsland tapaði með 9 stigum eftir 22 stiga forskot í hálfleik (umfjöllun)

Ísland tapaði með 9 stigum eftir 22 stiga forskot í hálfleik (umfjöllun)

Ísland mátti sætta sig við 9 stiga tap, 92-101, gegn Svartfjallalandi í Laugardalshöllinni í dag.  Íslenska liðið spila hreint út sagt stórkostlegan körfubolta í fyrri hálfleik, skoraði 61 stig gegn aðeins 39 stigum gestana.  Eins og við mátti búast mættu gestirnir því brjálaðir inní seinni háflleikinn og tókst að loka gjörsamlega á sóknarleik Íslenska liðsins.  Jón Arnór Stefánsson var þá settur í algjöra gjörgæslu en hann hafði skorað 23 stig í fyrri hálfleik.  Svartfjallaland snéri því leiknum algjörlega við og skoruðu 62 stig gegn 32 stigum íslands í seinni hálfleik sem dugði þeim til sigurs.  Jón Arnór endaði leikinn með 32 stig og Hlynur Bæringsson átti einnig stórkostlegan leik með 22 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar.  Pavel Ermolinskij átti virkilega fínan fyrri hálfleik en meiðslin tóku sig aftur upp í miðjum leik og þurfti hann því að hvíla nánast allan seinni hálfleik.  
 

Byrjunarlið Íslands í leiknum var Pavel, Jakob, Jón, Haukur og Hlynur

 

Jón Arnór setti fyrstu þrjú stig leiksins og Haukur Helgi fylgdi því eftir með öðrum þrist skömmu seinna sem kom Ísland í 6-0.  Svartfjallaland setti hins vegar næstu 5 stig og voru því búnir að minnka muninn niður í 1 stig þegar þrjár mínútur voru liðnar, 6-5.  Pavel setti næstu þrjú stig áður en Hlynur kláraði "og eitt" sniðskot, 12-5.  Svartfjallaland var hins vegar að nýta skotin sín alveg jafn vel og voru fljótir að svara fyrir flotta byrjun Íslenska liðsins.  Þegar sex mínútur voru liðnar af fyrsta leikhluta hafði Ísland enn 5 stiga forskot, 18-13.  Gestirnir minnkuðu muninn örlítið eftir því sem leið á leikhlutan og náðu því mest niður í tvö stig í stöðunni 21-19 áður en Jakob Örn setti niður tvö víti og jók muninn aftur upp í 4 stig, 23-19, og þannig stóðu tölur þegar fyrsta leikhluta lauk.  

 

Fyrstu stig annars leikhluta setti Jón Arnór af vítalínunni þar sem þjálfarar gestanna létu of mikið í sér heyra á milli leikhluta og fengu dæmda á sig tæknivillu.  Ísland nýtti tækifærið vel og gestirnir voru farnir að láta góða spilamennsku Íslenska liðsins fara í taugarnar á sér.  Þegar ein og hálf mínúta var liðin af öðrum leikhluta var forskot Íslands 7 stig, 28-21.  Haukur Helgi sýndi frábæra takta stuttu seinna þegar hann varði skot Vladimir Dasic með miklum tilburðum og Svartfellingar voru fljótir að brjóta illa af sér í næstu sókn Íslands og uppskáru tæknivillu fyrir vikið.  Ísland var því komið með 9 stiga forskot þegar fjórar mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta, 34-25.  Svartfjallaland tók svo leikhlé stuttu seinna en þá höfðu þeir þó náð að minnka muninn niður í 6 stig, 34-28.  Íslenska liðið gaf hvergi eftir, þó gestirnir næðu oft að minnka muninnþá lét þeir það ekkert trufla sig og náðu forskotinu aftur.  Dómaratríóið var að drita niður villunum og gestirnir voru vægast sagt ekki ánægður með þeirra vinnu.  Þegar þrjár mínútur voru eftir af öðrum leikhluta fengu gestirnir dæmda á sig sína þriðju tæknivillu og Ísland fékk fyrir vikið tvö skot og boltan.  Þrír leikmenn gestana voru þá komnir með þrjár villur og forskot Íslands stóð í 13 stigum, 45-32.  Hlynur Bæringsson setti svo þrist stuttu seinna og forskot Íslands var komið í 15 stig, 48-33. Íslenska liðið virtist vera alveg sjóðandi og setti niður hvert stóra skotið á fætur öðru.  Forskotið var því komið upp í 19 stig þegar Peter Öqvist tók leikhlé fyrir Íslenska liðið og lagði upp síðustu sókn fyrri hálfleiks, 58-39.  Sú sókn gekk fullkomnlega upp þar sem Jakob kláraði fyrri hálfleik með þrist og stuðningsmenn Íslenska liðsins stóðu á fætur og fögnuðu frábærum fyrri hálfleik hjá Íslenska liðinu, 61-39.  

 

 

Jón Arnór átti hreint út sagt stórkostlegan fyrri hálfleik með 23 stig og Hlynur bætti við 14 stigum í ótrúlegum sóknarleik Íslenska liðsins í fyrri hálfleik.  Íslenska liðið var að hitta afburðavel og skiluðu frábærum varnarleik gegn efsta liði riðilsins.  

 

Bæði Finnur Atli og Haukur nældi sér í sína fjórðu villu strax í upphafi þriðja leikhluta og gestirnir minnkuðu muninn nokkuð hratt.  Þeir höfðu skorað 6 stig gegn fyrstu 2 stigum Íslands sem þurfti að hafa mun meira fyrir stigunum en í fyrri hálfleik.  Þrátt fyrir frábæra takta frá Jón Arnóri og Hlyn þegar þurfti á að halda svaraði Vladimir Dasic frábærlega fyrir gestina með tveimur þristum á örskömmum tíma, 68-51.  Gestirnir settu niður sinn fimmta þrist í þriðja leikhluta þegar hann var rétt rúmlega hálfnaður og minnkaði muninn niður í 14 stig, 71-57.  Sjötti þristurinn kom stuttu seinna og bekkurinn hjá gestunum sýndi í fyrsta skiptið í leiknum smá fagnaðarlæti.  Munurinn var þá kominn niður í 11 stig og góður kafli gestanna orðinn alltof langur.  Hlynur Bæringsson lét mótlætið svo sannarlega ekki trufla sig og barðist eins og ljón allan tíman.  Hann sá nokkrum sinnum til þess að forskotið varð ekki minna en 9 stig í fyrr en á lokasekundum þriðja leikhluta og sýndi ótrúlega takta meðal annars með því að hirða eigið frákast undir körfunni eftir þriggja stiga skot.  Það voru Svartfellingar sem settu síðasta skot þrijða leikhluta þegar Taylor Rochestie setti niður þrist á lokaflautinu og minnkaði muninn niður í 7 stig fyrir loka leikhlutan, 76-69.  

 

Haukur Helgi fékk sína fimmtu villu strax í upphafi fjórða leikhluta og tók því ekki meira þátt í leiknum.  Taylor Rochestie hélt uppteknum hætti í upphafi fjórða og skoraði fyrstu sex stig leikhlutans, 76-75, áður en Peter Öqvist tók leikhlé.  Forskot Íslands var komið niður í eitt stig þegar þrjár mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta, 78-77 og áhlaup gestana í seinni hálfleik að reynast Íslenska liðinu afar erfitt.  Jón Arnór var mættur á Taylor og virtist hafa hann í gjörgæslu eftir 9 stiga kafla hjá kauða en alltaf fann hann leið að körfunni, hvort sem Jón braut á honum eða ekki.  Þegar Svartfjallaland hafði jafnað metin í 80-80 setti Logi í glæsilegan þrist eftir að Jakob greip skot sem hann varði hjá andstæðingnum, 83-80.  Jón Arnór fékk sína fimmtu villu þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum fyrir ótrúlega ódýrt brot.  Ótrúlega óheppileg villa fyrir Íslenska liðið.  Svartfjallaland klikkaði á þremur af fjórum vítatilraunum á stuttum kafla þegar um það bil þrjár mínútur voru eftir.  Þeir bættu það þó upp með því að setja tvo þrista á stuttu tíma og komast yfir í fyrsta skiptið í leiknum þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum, 83-87.  Logi fékk sína fimmtu villu um það bil mínútu síðar og þá höfðu þrír lykilmenn í Íslenska sóknarleiknum þurft að setjast á bekkinn.  Gestirnir juku svo forskotið hægt og rólega þar sem sóknarleikur Íslenska liðsins var vart til staðar í fjórða leikhluta fyrr en á síðusut mínútu leiksins.  Íslenska liðið reyndi hvað það gat að komast nær gestunum með villum á lokasekúndunum en því miður gekk það ekki.  Grátlegt 9 stiga tap gegn sterku liði Svartfjallalands því staðreynd.  

 

 

[email protected]

 

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -