HomeFréttirÍsland sækir Serbíu heim í kvöld - í beinni á aukarás RÚV

Ísland sækir Serbíu heim í kvöld – í beinni á aukarás RÚV

 Ísland sækir í kvöld heim einn erfiðasta útivöllinn í riðlininum og þó víðar væri leitað þegar þeir spila seinni leikinn gegn Serbíu.  Leikurinn hefst klukkan 18:30 að íslenskum tíma og má fylgjast með leiknum á aukarás RÚV í beinni útsendingu.  Lið Serbíu vann Ísland í Laugardalshöllinni með 13 stiga mun, 78-91, í fyrri leik liðanna.  Íslenska liðið spilaði þá feikivel og gátu gengið stoltir af velli.  
 Næsti heimaleikur Íslands er gegn Slóvakíu á sunnudaginn 2. september.  Íslendingar unnu frækinn útisigur gegn Slóvakíu fyrr í keppninni og því verður spennandi að sjá hvort þeim takist að endurtaka leikinn á Sunnudaginn.

 Mynd:  [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -