Slóvenía sigraði Ísland með 102 stigum gegn 75 í fjórða leik lokamóts EuroBasket 2017 í Helsinki. Slóvenska liðið því búið að sigra alla leiki sína til þessa á meðan að Ísland leitar enn að fyrsta sigrinum.
Byrjunarlið Íslands:
Hörður Axel Vilhjálmsson
Martin Hermannsson
Jón Arnór Stefánsson
Haukur Helgi Pálsson
Hlynur Bæringsson
Gangur leiks
Ísland byrjaði leikinn af krafti. Með þriggja stiga körfum frá Hauki Helga, Martin og Hlyni ná þeir í forystu á fyrstu mínútum leiksins. Slóvenar eru þó fljótir að taka við sér, en þegar hlutinn er um það bil hálfnaður eru þeir komnir með forystuna 13-16. Leikurinn er svo í járnum allt til loka hlutans, en eftir svakalega innkomu Elvars Friðrikssonar undir lok hans (4 stig, 2 fráköst og 2 stoðsendingar) leiðir Ísland 25-23 þegar fyrsti er á enda.
Í upphafi annars leikhlutans er leikurinn svo áfram stál í stál. Slóvenía þó með þriggja stiga forystu þegar 5 mínútur eru eftir af hálfleiknum, 35-38. Við tekur þá einn versti kafli íslenska liðsins í leiknum, þar sem að slóvenar ganga á þá og eru með 17 stiga forystu þegar að liðin ganga til búningsherbergja í hálfleik, 43-60.
Haukur Helgi var stigahæstur íslenskra leikmnna með 14 stig í fyrri hálfleiknum á meðan að fyrir Slóveníu var það Goran Dragic sem dróg vagninn með 12.
Seinni hálfleikinn byrjar Slóvenía á 5-16 áhlaupi. Gera þar með nánast út um leikinn. Þegar að þriðji leikhluti er á enda leiðir Slóvenía með 22 stigum, 59-81.
Í lokaleikhlutanum láta þeir svo kné fylgj kviði og sigra leikinn að lokum með 27 stigum, 75-102
Kjarninn
Íslenska liðið gerði vel í upphafi leiks. Bæði voru þeir áræðnir varnarmegin, sem og settu þeir skotin sín í sókninni. Um leið og skotin þeirra hættu að detta, fór Slóvenía að sigla fram úr þeim. Stóru nöfn þeirra sviku ekki heldur. Bakvarðaparið Goran Dragic og Luka Doncic skiluðu í heildina því sem að þurfti fyrir liðið til þess að sigra í dag. Ekki það að restin af liði þeirra hafi verið neitt slæm, en 6 leikmenn þeirra skoruðu 8 stig eða fleiri í leiknum.
Að því sögðu, þá áttu margir leikmenn liðsins flotta spretti í leik dagsins. Haukur Helgi, Elvar, Hlynur og Martin stóðu sig allir með stakri prýði á mörgum augnablikum leiksins gegn firnasterkum mótherja Slóveníu.
Tölfræðin lýgur ekki
Slóvenar gáfu 27 stoðsendingar á móti aðeins 14 hjá Íslandi í leik dagsins.
Atkvæðamestur
Martin Hermannsson var flottur í liði Íslands í dag, skilaði 18 stigum, 5 fráköstum, 4 stoðsendingum og 5 stolnum boltum á þeim 28 mínútum sem hann spilaði.





