Á laugardaginn var dregið í riðla í Evrópukeppni yngri landsliða en eins og kunnugt er mun Ísland taka þátt að þessu sinni með lið í aldursflokki U20 ára. Alls taka 112 karla lið og 91 kvenna lið þátt í sumar í A og B deildum yngri landsliða á komandi Evrópumóti. www.kki.is greinir frá.
Það voru þeir Ólafur Rafnsson, forseti, og Nar Zanolin framkvæmdastjóri FIBA Europe sem sáu um að stjórna drættinum.
Ísland leikur í D-riðli og drógumst við með heimamönnum í riðil. Leikið verður í Sarajevo, Bosníu dagana 14. tili 24. júlí og má fastlega búast við gríðarlegri stemmningu á leikjum heimamanna enda Bosnía stórþjóð í körfuboltanum og því spennandi mót framundan hjá U20.
Mótherjar Íslands í sumar verða auk heimamanna:
D-riðill
Ísrael
Hvíta Rússland
Ísland
Belgía
Bosnía
Aðrir riðlar í B-deildinni í Sarajevo:
A-riðill
Póland
Rúmenía
Georgía
Eistland
Sviss
Makedónía
B-riðill
Búlgaría
Slóvakía
Danmörk
Holland
Ungverjaland
C-riðill
Tékkland
Portúgal
Noregur
Bretland
Finnland
Lúxemborg
Eftir riðlakeppni er leikið í þremur milliriðlum þar sem lið 1-9 í milliriðil 1 eiga kost á að leika til úrslita og vinna sér sæti í A-deild að ári.
Mynd/ Tomasz Kolodziejski: Benedikt Guðmundsson er nýráðinn þjálfari U20 ára landsliðsins.




