U20 landslið kvenna leikur í dag klukkan 15:00 gegn Þýskalandi í umspili um 9. til 12. sæti á Evrópumótinu í Litháen.
Stelpurnar okkar tryggðu sæti sitt í deild þeirra bestu (A-deild) með frábærum sigri á Svíþjóð í síðasta leik. Nú er stefnan sett enn hærra og stríðshanskinn tekinn upp gegn Þjóðverjum! Liðið hefur sýnt magnaða frammistöðu á mótinu og það verður spennandi að fylgjast með þeim í dag.
Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á vefsíðu FIBA.
👉 [Horfa á leikinn í beinni hér]



