spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2023Ísland mætir Svíþjóð kl. 13:30 í seinni leik Scandic Cup

Ísland mætir Svíþjóð kl. 13:30 í seinni leik Scandic Cup

A landslið kvenna er í æfingaferð í Tampere í Finnlandi þar sem liðið mun etja kappi nú um helgina við Finnland og Svíþjóð á Scandic Cup mótinu. Benedikt Guðmundsson hefur valið 12 leikmenn til að taka þátt í leikjunum tveim en þeir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir landsliðsglugga vetrarins í undankeppni EM sem fram fara í nóvember og febrúar næstkomandi.

Í gær tapaði liðið fyrir Finnlandi í fyrri leik sínum á þessu þriggja liða æfingamóti, en kl. 13:30 í dag mæta þær Svíþjóð.

Hérna er er lifandi tölfræði frá leiknum

Hérna verður hægt að horfa á leikinn gegn vægu gjaldi

Hér fyrir neðan er hópur liðsins.


Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur (4)
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (10)
Dagný Lísa Davíðsdóttir · Fjölnir (2)
Diljá Ögn Lárusdóttir · Stjarnan (Nýliði)
Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar (2)
Helena Rafnsdóttir · Njarðvík (Nýliði)
Helena Sverrisdóttir · Haukar (77)
Hildur Björg Kjartansdóttir · Valur (34)
Vilborg Jónsdóttir · Njarðvík (Nýliði)
Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörku (23)

Anna Ingunn Svansdóttir var valin í liðið en er fjarri góðu gamni vegna veikinda. Þá mun Sara Rún Hinriksdóttir einnig vera frá keppni í dag vegna snúins ökkla.


Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Ólafur Jónas Sigurðsson
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir


Fararstjórn og liðsstjórn: Kristinn Geir Pálsson og Hannes S. Jónsson
Dómari Íslands í leikjunum: Jóhannes Páll Friðriksson, FIBA dómari

Fréttir
- Auglýsing -