HomeLandsliðinEuroBasket 2029Ísland mætir Sviss, Írlandi og Aserbaídsjan í forkeppni EuroBasket

Ísland mætir Sviss, Írlandi og Aserbaídsjan í forkeppni EuroBasket

Ísland mætir Sviss, Írlandi og Aserbaídsjan í forkeppni EuroBasket

Dregið var í riðla fyrir forkeppni EuroBasket 2029 í Sviss í dag. Íslenska kvennalandsliðið dróst í A-riðil ásamt heimakonum í Sviss, Írlandi og Aserbaídsjan. Alls taka tíu þjóðir þátt í þessum hluta keppninnar.

Leikið verður heima og að heiman í tveimur gluggum; sá fyrri fer fram í nóvember á þessu ári og sá síðari í febrúar 2027. Það er ljóst að spennandi verkefni bíður liðsins í baráttunni um sæti á stóra sviðinu.

Leikjadagskrá Íslands:

Nóvember 2026

• 11. nóv: Írland – Ísland

• 14. nóv: Ísland – Sviss

• 17. nóv: Ísland – Aserbaídsjan

Febrúar 2027

• 10. feb: Ísland – Írland

• 13. feb: Sviss – Ísland

• 16. feb: Aserbaídsjan – Íslannd

Fréttir
- Auglýsing -