Íslenska U16 ára landslið drengja mætir Svartfjallalandi í átta liða úrslitum Evrópumótsins í B-deild í Gevgelija í Makedóníu í dag, fimmtudaginn 13. ágúst.
Flautað verður til leiks klukkan 11:30 að íslenskum tíma (13:30 að staðartíma).
Íslensku strákarnir tryggðu sér sæti í átta liða úrslitunum eftir frábæra frammistöðu í B-riðli þar sem liðið landaði fjórum sigrum í fimm leikjum. Nú hefst útsláttarkeppnin og er mikið í húfi en sigurvegari leiksins færst áfram í undanúrslit mótsins.
Svartfjallaland teflir fram öflugu liði en lærisveinar Dino Stipcic mæta vel undirbúnir og ætla sér alla leið.
Hægt verður að fylgjast með öllum tilþrifunum og horfa á leikinn í beinni útsendingu hér




