HomeLandsliðinEuroBasket 2027Ísland mætir Serbíu og Portúgal – Hópurinn klár

Ísland mætir Serbíu og Portúgal – Hópurinn klár

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir aftur til leiks í marsmánuði þegar tveir mikilvægir leikir fara fram í undankeppni EuroBasket 2027. Pekka Salminen, landsliðsþjálfari, og þjálfarateymi hans hafa valið þann hóp sem á að tryggja liðinu góð úrslit í komandi glugga.


Liðið hefur leik miðvikudaginn 11. mars í Novi Sad þar sem öflugt lið Serba bíður þeirra klukkan 17:00. Eftir þá rimmuna heldur hópurinn heim á leið, því þriðjudagskvöldið 17. mars klukkan 19:30 mætir liðið Portúgal í Ólafssal.

Hérna er heimasíða mótsins

Tólf leikmenn munu ferðast út til Serbíu á laugardaginn. Við heimkomu bætast þrír leikmenn til viðbótar við hópinn sem munu æfa með liðinu og búa það undir heimaleikinn gegn Portúgal.

Leikmennirnir sem leika gegn Serbíu:

Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík

Ásta Júlía Grímsdóttir – Valur

Danielle Rodriguez – Njarðvík

Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík

Kolbrún María Ármannsdóttir – TK Hannover Luchse

Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR

Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík

Sigrún Björk Ólafsdóttir – Haukar

Tinna Guðrún Alexandersdóttir – Haukar

Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík

Þóra Kristín Jónsdóttir – Haukar

Þóranna Kika Hodge-Carr – Valur

Til viðbótar við ofangreindan hóp munu þær Berglind Katla Hlynsdóttir, Eva Wium Elíasdóttir og Kristrún Ríkey Ólafsdóttir taka þátt í æfingum liðsins fyrir heimaleikinn gegn Portúgal.

Fréttir
- Auglýsing -