spot_img
HomeFréttirÍsland mætir feikisterku liði Litháen kl. 19:30 í kvöld

Ísland mætir feikisterku liði Litháen kl. 19:30 í kvöld

Ísland mun í kvöld kl. 19:30 mæta Litháen í Laugardalshöll í þriðja leik sínum í undankeppni HM 2027. Leikur kvöldsins mun vera í beinni útsendingu á RÚV 2 frá kl. 19:20, en uppselt var á mettíma á leikinn sjálfann.

Leikurinn er annar tveggja í þessum öðrum glugga keppninnar, en líkt og Ísland, hafa öll lið riðilsins unnið einn leik og tapað einum til þessa í undankeppninni.

Seinni leikur Íslands í þessum öðrum glugga er einnig gegn Litháen, en hann mun fara fram ytra komandi mánudag 2. mars.

Hérna er heimasíða mótsins

Ísland hafði fyrir viku síðan tilkynnt 13 leikmanna hóp sem sjá má hér fyrir neðan, en vegna meiðsla Orra Gunnarssonar á æfingu liðsins í vikunni er útséð með að hann verður ekki með liðinu aftur í bráð.

Hérna er 16 leikmanna hópur Litháen

Eftir eru því 12 leikmenn sem leika þessa tvo leiki gegn Litháen, en þá, ásamt viðtölum sem tekin voru á æfingu í vikunni má sjá hér fyrir neðan.

13 leikmanna hópur Íslands / félag / landsleikir:

Elvar Friðriksson – Anwil Wloclawek – 86 leikir

Haukur Helgi Pálsson – Álftanes – 84 

Hilmar Smári Henningsson – Stjarnan – 30

Jón Axel Guðmundsson – CB San Pablo Burgos – 47

Kári Jónsson – Valur – 45

Kristinn Pálsson – General Contractor Jesi – 47

Orri Gunnarsson – Stjarnan – 23 

Ólafur Ólafsson – Grindavík – 52

Styrmir Snær Þrastarson – CB Zamora – 32

Tryggvi Snær Hlinason – Bilbao Basket – 81

Veigar Páll Alexandersson – Njarðvík – Nýliði 

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – KR – 31

Ægir Þór Steinarsson – Stjarnan – 103

Fréttir
- Auglýsing -