Íslenska U20 landslið kvenna lýkur leik í B-deild evrópumóts U20 landsliða sem fram fer í Ísrael þessa dagana. Liðið tapaði í gær gegn Rúmeníu í leik um 9-12 sæti og þarf því að leika hreinan úrslitaleik um 11. sæti mótsins.
Liðið hefur enn ekki unnið sigur á mótinu ekki frekar en írska liðið sem einnig tapaði fyrir Rúmeníu í riðlakeppni mótsins.
Leikurinn fer fram kl 12:45 að Íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Youtube rás FIBA.
Leikur dagsins:
Ísland – Írland kl 12:45 að íslenskum tíma – í beinni á Youtube rás FIBA