Íslenska U18 ára landsliðið var rétt í þessu að tapa naumlega gegn Finnum í lokaleik riðlakeppninnar í B-deild Evrópukeppninnar. Lokatölur voru 78-86 Finnlandi í vil í hörkuspennandi slag. Þetta þýðir að U18 ára landslið Íslands verður áfram í B-deild og munu leika um 9-16. sætið á mótinu.
Martin Hermannsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 20 stig og 3 fráköst. Matthías Orri Sigurðarson gerði 18 stig, tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar og Elvar Már Friðriksson var með 13 stig, 3 fráköst og 4 stoðsendingar.
Það voru því Finnar og Svartfellingar sem fóru áfram í 8-liða úrslitin þar sem Svartfellingar höfðu betur gegn Svíum í dag.
Mynd/ Einar Árni Jóhannsson þjálfari U18 ára landsliðs Íslands.





