Ísland og Ísrael eigast nú við í Laugardalshöll í riðlakeppni Evrópukeppninnar. Leikurinn hefst kl. 19:15 en fyrir leik kvöldsins hafa Ísraelar tapað tveimur fyrstu leikjum sínum en Ísland unnið einn og tapað einum. Hér að neðan fer bein textalýsing frá leiknum:
Stigaskor Íslands í leiknum:
Haukur Helgi Pálsson 19 stig – 4 fráköst
Jón Arnór Stefánsson 17 stig – 6 stoðsendingar
Hlynur Bæringsson 15 stig – 8 fráköst
Stigaskor Ísraels í leiknum:
Casspi 17 stig – 7 fráköst
Limonad 17 stig
Tyus 16 stig – 9 fráköst
4. leikhluti
Leik lokið: Lokatölur voru 83-110 Ísrael í vil.
– 75-103: 1.19mín til leiksloka og stórsigur Ísraels að þessu sinni. Okkar menn voru nokkuð fjarri sínu besta og ljóst að liðið saknar sárt Pavels Ermolinskij sem er að glíma við nárameiðsli.
– 67-97: Munurinn orðinn 30 stig og Ísraelar númeri of stórir að þessu sinni.
– 67-93: 3.55mín til leiksloka og menn væntanlega farnir að huga bara að næsta leik sem verður gríðarlega erfiður, Svartfjallaland á útivelli.
– Ísraelsmenn eru hér aðeins fimm mínútum frá fyrsta sigri sínum í keppninni en þetta er þriðja umferð og hafa gestir okkar í kvöld tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í mótinu gegn Svartfjallalandi og Eistlandi.
– 65-88: 5.50mín eftir af leiknum og munurinn 23 stig…
– 59-84: 8.05mín eftir af leiknum og leikhlé í gangi…
– Fjórði leikhluti er hafinn og íslenska liðið hefur því 10 mínútur til viðbótar til að sýna hvað í þeim býr.

Omri Casspi leikmaður Cleveland Cavaliers hefur verið að baka íslensku vörninni vandræði í allt kvöld
___________________________________________________________________________________________
3. leikhluti
– Þriðja leikhluta lokið: 51-80 fyrir Ísrael og munurinn 29 stig! Gestirnir einfaldlega miklu betri hér í kvöld og okkar menn virðast bara nokkuð ráðalausir og töluverð vöntun á baráttu og vilja í íslenska hópnum.
– 49-76: Casspi með þrist fyrir Ísrael…maðurinn klikkar bara ekki úr skoti!
– 48-73: 2.50mín eftir af þriðja leikhluta…vantar alla stemmningu í íslenska hópinn og fátt að ganga upp að þessu sinni. Munurinn orðinn 25 stig og nú fer hver að verða síðastur til að jafna leikinn.
– 45-69: Ísland fær enn einn þristinn yfir svæðisvörnina sína…Ísraelar eru heitir fyrir utan og því má deila um hvort sé rétt að vera í svæðisvörn á þessum tímapunkti.
– 43-66: 5.04 mín eftir af þriðja…Ísraelar svara með látum góðri byrjun Íslands og Peter Öqvist tekur leikhlé eftir 9-0 áhlaup Ísraela sem lauk með troðslu eftir hraðaupphlaup hjá Omri Casspi.
– 43-60: Casspi setur þrist og minnir sína menn í Ísrael á að þeir voru funheitir fyrir utan í fyrri hálfleik.
– 43-57: 6.40mín eftir af þriðja og það virðist vera komið smá blóð í tennurnar hjá okkar mönnum…
– 40-57: Haukur Helgi treður með látum og það kviknar smá líf í íslenska hópnum.
– Síðari hálfleikur er hafinn og inná í íslenska liðinu eru Jakob Örn, Jón Arnór, Haukur Helgi, Helgi Már og Hlynur Elías.
– Síðari hálfleikur hefst eftir tæpar 10 mínútur…
___________________________________________________________________________________________

Jón Arnór Stefánsson til varnar í fyrri hálfleik
___________________________________________________________________________________________
Skotnýting Íslands í hálfleik:
Tveggja 31,8% – þriggja 30,8% og víti 76,9%
Skotnýting Ísraels í hálfleik:
Tveggja 58,3% – þriggja 87,5% og víti 25%
___________________________________________________________________________________________
Stigaskor Íslands í hálfleik:
Jón Arnór 14 stig
Hlynur Bærings 9 stig
Haukur Helgi 6 stig
___________________________________________________________________________________________
2. leikhluti
– Fyrri hálfleik lokið: Staðan er 36-50 fyrir Ísrael í hálfleik. Hlynur fékk tvö víti undir lok fyrri hálfleiks en setti bara annað þeirra niður og staðan því 36-50.
– Brotið á Hlyn þegar 1,5 sek eru til hálfleiks og hann heldur á vítalínuna…
– Í áttundu tilraun klikkuðu Ísraelsmenn loks á þriggja stiga skoti, ekki amalegt að halda út í rúmar 19 mínútur með 100% þriggja stiga nýtingu.
– 35-50: Hlynur Bæringsson á vítalínunni þegar 40 sek eru til hálfleiks og setur bæði.
– 31-50: 2.00mín til hálfleiks…
– 29-48: Ísraelsmenn skella niður tveimur þristum í röð yfir íslensku vörnina og okkar menn taka leikhlé. Ísraelar eru með magnaða nýtingu það sem af er leik, 72,2% í tveggja og 100% í þristum en þeir hafa sett öll sjö þriggja stiga skotin sín í leiknum!
– 29-42: 4.00mín eftir af fyrri hálfleik, Jakob Örn var enda við að setja niður tvö víti.
– 27-39: Ísraelsmenn taka leikhlé…þeir halda okkar mönnum í þetta 10 stiga fjarlægð en skotnýting Íslands mætti vera betri, hún er núna t.d. 26% í tveggja stiga skotum.
– Íslenska liðið enn að glíma við göt í sínum varnarleik, Ísraelsmenn finna margar og auðveldar leiðir upp að körfunni.
– 25-35: Jón Arnór með annan þrist eftir stoðsendingu frá Loga. 7.00mín eftir af öðrum leikhluta.
– 22-33: Haukur Helgi með sóknarfrákast, skorar og fær víti að auki sem fer niður af öryggi hjá kappanum.
– Annar leikhluti er hafinn: Ísland byrjar með Jón Arnór, Jakob Örn, Ægi Þór, Hauk Helga og Hlyn Bærings.

Jakob Örn sækir að Ísraelsmönnum í 1. leikhluta.
__________________________________________________________________________________________
1. leikhluti
– Fyrsta leikhluta lokið: Staðan er 19-29 að loknum fyrsta leikhluta en Ísland átti síðustu sóknina þar sem Haukur Helgi Pálsson setti niður góðan þrist. Jón Arnór er kominn með 9 stig í íslenska liðinu en hjá Ísrael er Casspi einnig með 9 stig.
– 16-29: 27 sek eftir af fyrsta leikhluta
– 13-25: Jón Arnór með þrist eftir stoðsendingu frá Loga Gunnarssyni, gott samspil hjá þeim félögum.
– 10-25: Halperin leikmaður St. Petersburg kominn með 8 stig og Casspi leikmaður Cleveland kominn með 6 stig í ísraelska liðinu. Hjá Íslandi er Finnur Atli að koma sterkur af bekknum með 5 stig.
– 8-22: 3.37mín eftir af fyrsta og Ísraelsmenn fá hér villu og víti að auki sem þeir brenna af.
– 7-18: 4.30mín eftir af fyrsta, Ísland búið að fá allt of mörg stig á sig hér í upphafi leiks og ljóst að menn verða að herða róðurinn í vörninni.
– 5-14: Ísraelsmenn hitta vel í upphafi leiks en íslenska vörnin er s.s. ekki að gera þeim hlutina neitt erfiða fyrir.
– 5-9: Jón Arnór kemur svellkaldur út úr leikhléinu og minnkar muninn með þrist fyrir Ísland.
– 2-9: Ísraelsmenn taka 9-0 áhlaup og Peter Öqvist biður um leikhlé fyrir íslenska liðið.
– Fólk er enn að týnast í Höllina svo það má gera ráð fyrir því að strákarnir okkar fá myndarlegan stuðning í kvöld.
– 2-0: Hlynur Bæringsson gerir fyrstu stig Íslands eftir gott samspil við Jakob Örn.
– Byrjunarlið Ísland í kvöld er: Ægir Þór Steinarsson, Jakob Örn Sigurðarson, Jón Arnór Stefánsson, Haukur Helgi Pálsson og Hlynur Bæringsson.
– Leikar eru við það að hefjast og mæting með ágætasta móti í Laugardalshöll