Nú er þremur umferðum lokið í A-riðli í Evrópukeppninni en sjálf lokakeppnin fer fram í Slóveníu á næsta ári. Eftir þrjá leiki í riðlinum er Ísland í fimmta og næstneðsta sæti riðilsins með einn sigur og tvo tapleiki. Svartfellingar tróna á toppi riðilsins og hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína.
Serbía og Eistar hafa unnið tvo leiki og tapað einum og Ísraelsmenn, eins og Íslendingar, hafa unnið einn leik og tapað tveimur en hafa betur gegn okkur innbyrðis eftir leikinn í gær og eru því í 4. sæti. Á botninum eru Slóvakar án sigurs.
Ísland tapaði stórt í gær gegn Ísrael 110-83. Serbar skelltu Slóvakíu á útivelli 71-93 og Svartfellingar lögðu Eista í Eistlandi 64-77.
Í næstu umferð mætast Slóvakía og Ísrael, Serbía og Eistland og Ísland leggur land undir fót og mætir á sterkan heimavöll Svartfellinga. Leikur Svartfjallalands og Íslands er á föstudag kl. 20:30 að staðartíma eða kl. 18:30 að íslenskum tíma þar sem Svartfellingar eru tveimur tímum á undan okkur.
Staðan í A-riðli
Team |
P | W/L | F/A | Pts | |
|---|---|---|---|---|---|
| 1. | Montenegro | 3 | 3/0 | 225/204 | 6 |
| 2. | Serbia | 3 | 2/1 | 255/222 | 5 |
| 3. | Estonia | 3 | 2/1 | 247/237 | 5 |
| 4. | Israel | 3 | 1/2 | 265/246 | 4 |
| 5. | Iceland | 3 | 1/2 | 242/276 | 4 |
| 6. | Slovak Republic | 3 | 0/3 | 220/269 | 3 |
Mynd/ [email protected]





