Íslenska landsliðið stendur í ströngu þessa stundina í hörkuleik gegn Slóvakíu í Laugardalshöllinni. Íslenska liðið er búið að spila ágætlega og þá má sérstaklega hrósa sóknarleik liðsins sem er að virka vel. Þegar flautað var til hálfleiks var Slóvakía með tveggja stiga forskot 47-49, eftir að Ísland lagaði stöðuna með 4 síðustu stigum fyrri hálfleiks. Jón Arnór fór þar fyrir okkar mönnum með 12 stig en Hlynur er kominn með 11 og 7 fráköst og Haukur Pálsson 7 stig.
Eitthvað virðist leiktíminn vera að hafa áhrif á mætinguna í höllina því ásjánlega færri virðast hafa séð sér fært um að mæta og styðja liðið í dag. Það er vonandi að liðið láti það ekki á sig fá og skili tveimur stigum í hús í dag.
mynd: [email protected]





