HomeFréttirÍsland 11 stigum undir í hálfleik

Ísland 11 stigum undir í hálfleik

Ísland er 11 stigum undir í hálfleik gegn Eistlandi í Laugardalshöllinni 27-38. Ísland hefur ekki fundið sig í sókninni og aðeins nýtt 2 af þrettán skottilraunum fyrir utan þriggja stiga línuna.  Þar fyrir utan er lið gestanna með 30% betri nýtingu í tveggja stiga skotum.  Stigahæstur í liði Íslands er Helgi Magnússon með 7 stig á aðeins 6 mínútum en næstu menn eru Hlynur Bæringsson með 6 stig og Jón Arnór með 5 stig.  
 
Það er þó ljóst að mikið rými er fyrir bætingu hjá liðinu því bæði Jón Arnór og Jakob Sigurðsson hafa ekki fundið sig í sókninni.  
 
Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði úr leiknum á vef FIBA, hér 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -