Það er stórleikur framundan í Síkinu í kvöld þegar Tindastóll og Grindavík mætast í fjórða sinn í úrslitum Bónus deildar karla í.
Flautað verður til leiks klukkan 19:15 en staðan í einvíginu þýðir að mikið er í húfi. Grindvíkingar mæta hins vegar verulega laskaðir til leiks þar sem tveir af lykilmönnum liðsins, þeir Ólafur Ólafsson og DeAndre Kane, geta ekki spilað vegna meiðsla. Svo alvarleg eru meiðsli þeirra samkvæmt heimildum Körfunnar að óvíst er hvort þeir nái fimmta leiknum á fimmtudaginn, komi til þess að Tindastóll fagni sigri í kvöld.
Til að bregðast við þessu mikla áfalli hafa Grindvíkingar fengið Isiah Coddon aftur inn í leikmannahópinn, en hann lék einmitt með liðinu fyrr á tímabilinu. Verkefnið verður engu að síður ærið fyrir gestina að sækja sigur á erfiðan útivöll gegn Skagfirðingum án tveggja sterkustu pósta sinna.



