spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaÍsak Örn áfram með Fjölni

Ísak Örn áfram með Fjölni

Ísak Örn Baldursson hefur framlengt samning sínum við Fjölni í fyrstu deild karla.

Ísak hefur spilað með yngri landsliðum Íslands og var á dögunum valinn til að leika með U-20 landsliðinu á tveimur sterkum alþjóðamótum í sumar.  Ísak, sem lék stórt hlutverk hjá Fjölni á síðasta tímabili, var á dögunum valinn varnarmaður félagsins á lokahófi félagsins.   

,,Ég er spenntur fyrir komandi tímabili, það er góður andi í hópnum, og við ætlum okkur að byggja ofan á það sem við gerðum á síðasta tímabili. Það var vaxandi stemning fyrir körfunni í Grafarvogi síðasta vetur og við vonumst til að sjá sem flesta í stúkunni á þessu tímabili,” sagði Ísak þegar hann skrifaði undir. 

Fréttir
- Auglýsing -