spot_img
HomeFréttirÍsak dæmir leik Phoenix Suns og Dallas Mavericks

Ísak dæmir leik Phoenix Suns og Dallas Mavericks

 

Rétt í þessu hófst leikur Phoenix Suns og Dallas Mavericks í sumardeild NBA deildarinnar bandarísku í Las Vegas. Leikurinn merkilegur fyrir margar sakir, kannski aðallega þá að þar takast á tveir efnilegustu nýju leikmenn deildarinnar, Dennis Smith Jr. hjá Mavericks og Josh Jackson hjá Suns.

 

Fyrir okkur íslendinga er leikurinn þó sérstaklega merkilegur, þar sem að dómari úr Dominos deildunum, Ísak Ernir Kristinnsson mun dæma seinni hálfleik leiksins. Ísak mun bera dómaratreyju númer 124 og mælum við sérstaklega með því að fólk stilli á leikinn og fylgist með okkar manni.

 

Hérna er hægt að horfa á beina útsendingu frá leiknum

 

 

Fréttir
- Auglýsing -