spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaIsabella Ósk semur við Íslandsmeistara Njarðvíkur "Kveð Blika með söknuði"

Isabella Ósk semur við Íslandsmeistara Njarðvíkur “Kveð Blika með söknuði”

Njarðvík hefur samið við Isabellu Ósk Sigurðardóttur um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili í Subway deild kvenna. Isabella kemur til liðsins frá uppeldisfélagi sínu Breiðablik, þar sem hún hefur leikið síðustu ár, en hún lék einnig fyrir South Adelaide Panthers í Ástralíu síðastliðið sumar.

Í þeim sjö deildarleikjum sem Isabella Ósk hefur leikið með Breiðablik á tímabilinu hefur hún verið með 12 stig og 13 fráköst að meðaltali í leik og tæpa 22 framlagspunkta að jafnaði sem gerir hana að sjöunda framlagshæsta leikmanni deildarinnar þegar þetta er ritað.

„Koma Isabellu styrkir hópinn okkar gríðarlega enda er hér á ferðinni einn af bestu leikmönnum deildarinnar. Við fögnum því að fá Isabellu í Ljónagryfjuna og erum spennt að sjá hvernig henni gangi að ná utan um þræðina í okkar liði,” sagði Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari.

Í samtali við Isabellu við undirskriftina sagði hún að tími hefði verið kominn til að leita á ný mið. „Ég vissulega kveð Blika með söknuði enda mitt uppeldisfélag en held nú inn í toppbaráttuna með Njarðvík. Mér hefur fundist liðið mjög spenanndi í Njarðvík og er spennt að hefja störf með Rúnari, Lárusi og þessum sterka hóp.“

Fréttir
- Auglýsing -