HomeFréttirÍris Ásgeirsdóttir Íþróttamaður Hamars 2011

Íris Ásgeirsdóttir Íþróttamaður Hamars 2011

Körfuknattleikskonan Íris Ásgeirsdóttir hefur verið útnefnd Íþróttamaður Hamars fyrir árið 2011. Þá var Íris jafnframt valin Körfuknattleiksmaður HSK árið 2011 og Íþróttakona Hveragerðisbæjar.
 
Hér má sjá umsögn um Írisi af heimasíðu Hamars:
 
Íris hefur verið burðarás í kvennakörfunni í Hveragerði til fjölda ára. Hún hóf feril sinn í barna- og unglingastarfinu og spilaði síðan með glæsibrag upp alla flokka. Áhugi hennar var ávallt mikill og gaf góða vísbendingu um það sem koma skyldi. Íris er afar góð fyrirmynd þeirra sem yngri eru. Hún tekur æfingar alvarlega og leggur sig ávallt alla fram. Hún spilar af einbeitingu og yfivegun og var fyrirliði meistaraflokks kvenna á síðustu leiktíð þegar meistaraflokkur kvenna varð deildarmeistari Iceland Express deildarinnar 2011. Með því var stærsti titill Körfuknattleiksdeildar Hamars, hingað til, í höfn.
 
Stjórn Kkd. Hamars er afar stollt af okkar fulltrúa og óskar henni til hamingju með titilinn. Íris er jafnframt útnefnd sem Körfuknattleiksmaður HSK 2011.
 
www.hamarsport.is
  
Fréttir
- Auglýsing -